Tillaga um dagskrá næsta fundar

Fimmtudaginn 30. apríl 1998, kl. 10:52:01 (6015)

1998-04-30 10:52:01# 122. lþ. 115.91 fundur 331#B tillaga um dagskrá næsta fundar#, ÁRJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 115. fundur, 122. lþ.

[10:52]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Þó svo að frv. hæstv. umhvrh. hafi verið lagt fram til kynningar þá hefur það komið fram í umræðunni um frv. til sveitarstjórnarlaga að ekki verður við það unað að það verði hér aðeins til kynningar. Það er mjög margt óskýrt í þessu máli og ég get ekki séð að unnt verði að ljúka umræðu um sveitarstjórnarmálið nema ljóst verði hvernig frv. hæstv. umhvrh. muni líta út. Hér hafa verið boðaðar ýmsar breytingar við það frv. áður en það kemur fram aftur í haust og það hefur ekkert verið skýrt nánar hvernig það muni líta út.

Ég get ekki séð, herra forseti, að hægt verði að ljúka umræðunni um sveitarstjórnarmálið nema þetta frv. hæstv. umhvrh. komi til umræðu. Ég segi já.