Framhald þingstarfa og þingfrestun

Mánudaginn 04. maí 1998, kl. 16:11:40 (6184)

1998-05-04 16:11:40# 122. lþ. 117.92 fundur 340#B framhald þingstarfa og þingfrestun# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 117. fundur, 122. lþ.

[16:11]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Forseti vill segja á þessu stigi að það er ástæðulaust að tefja tímann í umræðunni. Hann hefur gefið yfirlýsingar um þau atriði sem komu fram í forsn. í morgun og liggja fyrir um þinghaldið. Forseti hefur fullan hug á því fljótlega að komast að dagskrármálum enda bíða margir umræðunnar.