Framhald þingstarfa og þingfrestun

Mánudaginn 04. maí 1998, kl. 16:14:21 (6186)

1998-05-04 16:14:21# 122. lþ. 117.92 fundur 340#B framhald þingstarfa og þingfrestun# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 117. fundur, 122. lþ.

[16:14]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Vegna ummæla hv. þm. vill forseti segja að auðvitað er ábyrgðin okkar allra og forseti bindur vonir við að innan mjög skamms tíma hafi menn í þinginu, stjórn og stjórnarandstaða, náð góðu samkomulagi um framhald þingstarfanna.