Sveitarstjórnarlög

Þriðjudaginn 05. maí 1998, kl. 22:02:53 (6227)

1998-05-05 22:02:53# 122. lþ. 118.2 fundur 288. mál: #A sveitarstjórnarlög# (heildarlög) frv. 45/1998, PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 122. lþ.

[22:02]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir þessa samantekt úr ræðu sinni. Hún var alveg fullnægjandi. Hann hefði getað flutt alla ræðuna á tveim mínútum vegna þess að allt sem hann hefur sagt, eins og hv. þm. sagði sjálfur, hefur komið fram áður. Ég veit sem sagt kjarnann. Ég er búinn að heyra þetta allt saman áður þannig að hv. þm. hefði getað flutt tveggja mínútna ræðu og þá hefði athyglin hjá mér verið alveg logandi allan tímann.