Sveitarstjórnarlög

Þriðjudaginn 05. maí 1998, kl. 22:05:49 (6229)

1998-05-05 22:05:49# 122. lþ. 118.2 fundur 288. mál: #A sveitarstjórnarlög# (heildarlög) frv. 45/1998, ÁE (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 122. lþ.

[22:05]

Ágúst Einarsson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Í tilefni af þeirri umræðu sem átt hefur sér stað nú í andsvörum vil ég spyrja hæstv. forseta hvaða reglur gildi um ræðutíma við 2. umr. máls.

Ég vil sömuleiðis spyrja hæstv. forsrh. hvort hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir eða aðrir þingmenn sem hér hafa talað hafi ekki að fullu og öllu haldið sig innan þingskapa Alþingis.