Fyrirspurn um málefni Landsbankans og Lindar hf.

Miðvikudaginn 06. maí 1998, kl. 10:31:28 (6237)

1998-05-06 10:31:28# 122. lþ. 119.93 fundur 349#B fyrirspurn um málefni Landsbankans og Lindar hf.# (aths. um störf þingsins), ÁRJ
[prenta uppsett í dálka] 119. fundur, 122. lþ.

[10:31]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Mig langar til að kveðja mér hljóðs um störf þingsins í upphafi þingfundar til að spyrjast fyrir um það hvort svör hæstv. viðskrh. við fyrirspurn sem ég lagði fram á þingi 21. apríl sl. séu væntanleg. Þessi fyrirspurn er um málefni Landsbanka Íslands og fjármögnunarfyrirtækisins Lindar hf. Það er mjög mikilvægt að svör við þessari fyrirspurn sem er í tíu liðum komi fram á þinginu fyrir þinglok. Beðið er eftir svörum við þessari fyrirspurn víðar en í þinginu og geri ég eins ráð fyrir að við þurfum að ræða svör við fyrirspurninni þegar þau berast. Þess vegna spyr ég hæstv. forseta hvort hann viti nokkuð hvað líður þessum svörum frá hæstv. viðskrh.