Fyrirspurn um málefni Landsbankans og Lindar hf.

Miðvikudaginn 06. maí 1998, kl. 10:35:18 (6241)

1998-05-06 10:35:18# 122. lþ. 119.93 fundur 349#B fyrirspurn um málefni Landsbankans og Lindar hf.# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 119. fundur, 122. lþ.

[10:35]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill eingöngu árétta það sem hann sagði áðan að forsetar munu ganga eftir því að svör við þessari fyrirspurn, eins og öðrum, berist innan tilskilins frests og samkvæmt þeim upplýsingum sem forseti hefur þá standa vonir til þess að þetta svar berist innan þess tíma.