Sveitarstjórnarlög

Föstudaginn 08. maí 1998, kl. 12:13:59 (6311)

1998-05-08 12:13:59# 122. lþ. 121.2 fundur 288. mál: #A sveitarstjórnarlög# (heildarlög) frv. 45/1998, Frsm. minni hluta RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 121. fundur, 122. lþ.

[12:13]

Frsm. minni hluta félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér hefur fundist mikilvægt að eigum samleið með Kvennalistanum í þessu stóra máli. Auðvitað er það svo að Alþingi á að geta breytt þessu eins og öðru. Ég átti ekki við það. Hins vegar er alveg ljóst að pólitískt mun Alþingi verða ófært um að taka þessa ákvörðun upp, verði hún að raunveruleika á þessum dögum.