Sveitarstjórnarlög

Föstudaginn 08. maí 1998, kl. 14:39:50 (6356)

1998-05-08 14:39:50# 122. lþ. 121.2 fundur 288. mál: #A sveitarstjórnarlög# (heildarlög) frv. 45/1998, KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 121. fundur, 122. lþ.

[14:39]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Við 2. umr. um þetta frv. hafa komið fram ýmsar athugasemdir er snúa að 7. gr. og ég vil upplýsa það hér að hv. félmn. mun taka frv. til athugunar milli 2. og 3. umr. Um það var gefið loforð við afgreiðslu málsins úr nefndinni. Síðan hafa bæst við nokkrar athugasemdir sem við munum skoða og það sem snýr að 7. gr. er eitt af því.