Endurskoðun á úthlutunarreglum LÍN

Mánudaginn 11. maí 1998, kl. 15:07:08 (6418)

1998-05-11 15:07:08# 122. lþ. 124.1 fundur 366#B endurskoðun á úthlutunarreglum LÍN# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 122. lþ.

[15:07]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Á fundi mínum með fulltrúum námsmanna hef ég lýst því að ég er ekki sammála öllu því sem kemur fram í kröfum þeirra og ég tel að þarna sé um viðfangsefni að ræða sem eigi fyrst að ræða til hlítar á vettvangi Lánasjóðs ísl. námsmanna. Síðan verði menn að sjá hvað ber á milli aðila og sjá hvaða tölur það eru, fjárhagslegar tölur eða fjárlagatölur sem koma út úr þeirri niðurstöðu sem menn eru að ræða á vettvangi Lánasjóðs ísl. námsmanna.