Uppsagnir hjúkrunarfræðinga

Mánudaginn 11. maí 1998, kl. 15:20:19 (6428)

1998-05-11 15:20:19# 122. lþ. 124.1 fundur 369#B uppsagnir hjúkrunarfræðinga# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 122. lþ.

[15:20]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Eins og fram kom hjá hv. þm. er um einstaklingsbundnar uppsagnir að ræða og samningar hafa farið í sérstaka aðlögunarnefnd og nú í úrskurðarnefnd og úrskurðarnefnd mun ljúka störfum öðru hvorum megin við næstu mánaðamót en í úrskurðarnefnd eru fulltrúar starfsmanna, fulltrúar stofnunarinnar og sáttasemjara.

Sem sagt, það líður hálfur mánuður hér frá þar til úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í málinu.