Reglugerð um ÁTVR

Mánudaginn 11. maí 1998, kl. 15:30:12 (6436)

1998-05-11 15:30:12# 122. lþ. 124.1 fundur 371#B reglugerð um ÁTVR# (óundirbúin fsp.), fjmrh.
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 122. lþ.

[15:30]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Ég hef verið spurður að því á öðrum vettvangi hvort til standi að afturkalla reglugerð um þetta, bæði í fjölmiðlum og á ársfundi ÁTVR sem haldinn var nýlega. Svarið við því er einfalt. Það er nei. Ég hef ekki hugsað mér að gera neinar slíkar breytingar. Ég tel að reglugerðin, sem gerð var af hálfu fyrrv. ráðherra, hafi verið réttmæt, hún hafi verið byggð á eðlilegum lagagrunni og engin ástæða sé til þess að hverfa til baka með þá ákvörðun.