Reglugerð um ÁTVR

Mánudaginn 11. maí 1998, kl. 15:32:08 (6438)

1998-05-11 15:32:08# 122. lþ. 124.1 fundur 371#B reglugerð um ÁTVR# (óundirbúin fsp.), fjmrh.
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 122. lþ.

[15:32]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Ekki veit ég hver er helst málum mælandi í þessu efni eins og hv. þm. tók til orða. Ég mótmæli því að forveri minn hafi brotið lög í þessu efni eða hafi stefnt að því að leggja niður þessa stofnun í trássi við lög. Það er auðvitað fráleitt. Það er ekki hægt að gera það án þess að lagaatbeini komi til.

Hér er um að ræða reglugerð á verksviði fjmrh. Hann gaf út reglugerðina. Hún stendur óbreytt. Svo einfalt er það mál.