Menntakerfið í Mexíkó

Mánudaginn 11. maí 1998, kl. 15:34:32 (6441)

1998-05-11 15:34:32# 122. lþ. 124.1 fundur 372#B menntakerfið í Mexíkó# (óundirbúin fsp.), ÍGP
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 122. lþ.

[15:34]

Ísólfur Gylfi Pálmason:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svörin. Mér þóttu þetta mjög athyglisverðar upplýsingar frá forseta Íslands og þess vegna finnst mér full ástæða til þess að kanna það og kynna sér hvernig skólahaldi í Mexíkó er háttað.

Sjálfur átti ég þess kost í síðustu viku að kynna mér skólahald í Svíþjóð, sem er mun nær, og hygg ég að við getum nýtt okkur ýmislegt hvernig skólarnir eru reknir þar en mér finnst full ástæða til þess að hæstv. menntmrh. kynni sér skólahald í Mexíkó.