Einkavæðing Landsvirkjunar og Landsbankans

Mánudaginn 11. maí 1998, kl. 15:37:43 (6444)

1998-05-11 15:37:43# 122. lþ. 124.1 fundur 373#B einkavæðing Landsvirkjunar og Landsbankans# (óundirbúin fsp.), SvG
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 122. lþ.

[15:37]

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðn.- og viðskrh. fyrir svörin. Þau eru alveg skýr. Ég skil þau þannig að ráðuneytisstjórinn hafi kannski ekki alveg nákvæmlega sett sig inn í hlutina þegar hann mælti þau orð sem höfð voru eftir honum vegna þess að hann sagði þetta algerlega ótvírætt samkvæmt blaðafréttum. Það getur líka verið að það hafi verið rangt eftir honum haft en ég hef hvergi séð það leiðrétt þannig að það var mjög mikilvægt að hæstv. iðnrh.- og viðskrh. leiðrétti þetta og upplýsti að engin ný einkavæðingaráform eru uppi, hvorki varðandi bankana hé heldur Landsvirkjun.