Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu

Mánudaginn 11. maí 1998, kl. 23:46:32 (6468)

1998-05-11 23:46:32# 122. lþ. 124.3 fundur 359. mál: #A rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu# frv. 57/1998, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 122. lþ.

[23:46]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti metur það við þá hv. þingmenn sem sitja hér þingfundi þótt þeir dragist fram á kvöld og jafnvel fram á nótt. Af langri þingreynslu veit hv. þm. að ekki er gengið eftir því við alla þingmenn og ekki heldur forustumenn flokkanna að þeir sitji alla þingfundi en ef nauðsyn krefur eru þeir kallaðir til starfa. Það vita hv. þingmenn.