Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Þetta mál snýst um það hvort við eigum að taka mark á yfirlýsingum forseta þingsins. Svo ég lýsi atburðarásinni þá átti þetta sér stað laust eftir kl. hálftólf í gærkvöldi. Þá kom alveg afdráttarlaus yfirlýsing frá forseta þingsins um að hann mundi beita sér fyrir að fundinum í félmn. yrði frestað.
Hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir kom hér upp og útskýrði hvað væri fyrirhugað á þessum fundi. Forseti sagði sérstaklega að það breytti engu. Hann sagði það sérstaklega: ,,Þetta breytir engu um afstöðu mína.`` Við vissum því ekki annað en að mark væri á þessu takandi, að hann mundi beita sér fyrir því að fresta þessum fundi.
Síðan les sá hæstv. forseti sem nú situr í forsetastól, væntanlega nánari lýsingu frá hæstv. forseta Ólafi G. Einarssyni, að hann hafi komist að þeirri niðurstöðu að illómögulegt væri að fresta fundi svona laust fyrir miðnætti. Það komu engin slík boð hvorki frá forsetastóli né í samtölum við þá hv. þingmenn sem hér voru í húsinu og eiga sæti í félmn., hvorki við hv. þm. Rannveigu Guðmundsdóttur né Ögmund Jónasson sem vissu ekki betur en hæstv. forseti hefði sett í gang það ferli að fresta þessum fundi. Það er þetta sem er meginatriðið í þessu. Hæstv. forseti Ólafur G. Einarsson fór úr húsi fljótlega og hv. þm. Guðni Ágústsson var til loka fundar. Fundinum lauk laust eftir kl. hálfeitt, 12.40 eða eitthvað þess háttar, þannig að í sjálfu sér hefði ekki þurft langa frestun á þessum tiltekna fundi.
Aðalmálið er þetta: Við tókum mark á og höfðum enga ástæðu til annars en að taka mark á yfirlýsingum forseta. Ef hann að nánari athugun hefði komist að því að illómögulegt væri að breyta þessu þá hefði hann getað beðið um einhverja samvinnu við það að útfæra þetta þannig að vel færi. Honum var í lófa lagið að gera það. Þingflokksformenn voru í húsinu, bæði hv. þm. Svavar Gestsson og hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir þannig að ekkert var því til fyrirstöðu að reyna að lenda þessu máli skynsamlega. Þetta gerði forseti ekki og það er ég að gagnrýna. Ég legg mikið upp úr sjálfstæði þingsins og vil bakka forseta þingsins upp í öllum hans störfum og því sem hann þarf að hafa fram gagnvart framkvæmdarvaldinu. En að mínu mati stendur hæstv. forseti sig því miður ekki sem skyldi hvað þann þátt varðar í sambandi við stjórn þingsins. Og ég harma það.