Sigríður Jóhannesdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Einstaklingar geta ekki nýtt sér slík flókin háhitasvæði eins og í Svartsengi, það er alveg rétt. Ég ítreka það hér að mér finnst ósanngjarnt að þegar svoleiðis er þá þurfi fyrirtæki eins og Hitaveita Suðurnesja, sem er samstarfsfyrirtæki allra sveitarfélaga á svæðinu, um aldur og ævi að borga þeim sem áttu þær þúfur þar sem jarðboranir fóru fram pening fyrir hvern lítra sem kemur upp úr holunni. Mér finnst það ósanngjarnt og ég stend við það hvar sem er og hvenær sem er.
Hins vegar finnst mér sanngjarnt eins og kom fram í umræðum fyrr í dag að þar sem um lághitasvæði er að ræða og yfirborðshita þá fái þeir sem eiga landið a.m.k. tækifæri til að nota hita fyrir sig sem endurgjald fyrir virkjun holunnar.