Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu

Miðvikudaginn 13. maí 1998, kl. 12:17:08 (6574)

1998-05-13 12:17:08# 122. lþ. 126.1 fundur 359. mál: #A rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu# frv. 57/1998, GE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 126. fundur, 122. lþ.

[12:17]

Gísli S. Einarsson:

Herra forseti. Með samþykkt þessarar greinar munu auðlindir í eigu þjóðarinnar færast til einkaaðila. Eins og ég kom inn á í máli mínu í upphafi er hér um að ræða mestu eignatilfærslu frá almenningi til einkaaðila í Íslandssögunni. Ég get engan veginn stutt þetta og segi nei, herra forseti.