Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu

Miðvikudaginn 13. maí 1998, kl. 12:23:11 (6579)

1998-05-13 12:23:11# 122. lþ. 126.1 fundur 359. mál: #A rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu# frv. 57/1998, GGuðbj (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 126. fundur, 122. lþ.

[12:23]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég trúi því ekki enn að ætlunin sé að lögfesta þetta frv. og þessa 3. gr. sem felur í sér mjög mikla eignatilfærslu til nokkurra einkaaðila. Sú eignatilfærsla ætti að sjálfsögðu að fara til þjóðarinnar sem á að eiga þær auðlindir sem um er að ræða. Ég segi nei.