Steingrímur J. Sigfússon (um fundarstjórn):
Herra forseti. Hæstv. forsrh. upplýsti áðan og réttilega að hann hefði í aprílmánuði sl. haft hugmyndir um að e.t.v. væri unnt að ljúka þinghaldinu strax um 20. apríl. Einnig er rétt að láta það koma fram að það var að frumkvæði hæstv. forsrh. sem janúarhlé Alþingis var lengt um eina viku. Samt er þetta sami hæstv. forsrh. og fer fyrir ríkisstjórn sem ætlast til afgreiðslu á á milli 40 og 60 þingmála, frumvarpa og tillagna. Mörg af þessum málum voru lögð fram á síðasta degi fyrir þann frest sem kveðið er á um í þingsköpunum.
Þessar staðreyndir málsins segja mjög mikið um viðhorf hæstv. forsrh. til Alþingis og hlutverks þess. Það er greinilega þannig að hæstv. forsrh. finnst að hlutverk Alþingis eigi að vera það og það eitt að afgreiða þegjandi og hljóðalaust allt sem hæstv. forsrh. sjálfum þóknast að leggja til.
Nú er staðan sú að hér eru til umfjöllunar á þingi óvenjumörg og stór deilumál. Við þær aðstæður að hæstv. ríkisstjórn ljær ekki máls á neinum breytingum, lagfæringum, samkomulagi eða frestun af einum eða neinum toga, er þá nokkuð að undra þó upp séu komnar sérstakar og afbrigðilegar aðstæður um þinghaldið? Ég verð að segja, herra forseti, að málflutningur hæstv. forsrh. --- ég var að reyna að leita í huga mér að einhverjum hliðstæðum eða dæmum sem maður gæti borið þetta saman við og mér datt aðeins eitt í hug. Loðvík XIV. og viðhorf hans til stöðu sjálfs sín í stjórnkerfinu og þess valds sem hann færi með. En hann mun hafa orðið eina frægastur fyrir setninguna: Ríkið, það er ég.
Þetta er hugarheimur af þessu tagi, herra forseti, sem verið er að lýsa inn í.
Ég segi, og ég meina það: Ég tel að við stöndum frammi fyrir því, herra forseti, að það sem við erum að upplifa þessa daga sé einstakur valdhroki manns sem ekki þolir að eitt eða neitt trufli það sem hann hefur ákveðið eða hann vill. Þannig birtist þetta mér. Ég held að þjóðin sé alveg fullfær um að átta sig á þessum hlutum og dæma. Tilraunir hæstv. forsrh. til að lemja niður stjórnarandstöðuna jafnómerkilega og ómaklega og hann er að reyna að gera í krafti stöðu sinnar og aðgangs að fjölmiðlum munu ekki heppnast.