Svavar Gestsson:
Herra forseti. Það er auðvitað mjög slæmt að þessi atkvæðagreiðsla skuli hafin um frv. Það hefði verið eðlilegt að fresta henni áður en atkvæðagreiðslan hófst um 1. gr. með hliðsjón af orðum hv. 4. þm. Vestf. Það er augljóst mál að staðan er núna þannig að ríkisstjórnin hefur ekki vald á stöðunni hér í salnum. Er það ætlun ríkisstjórnarinnar og bón til stjórnarandstöðunnar að við hjálpum þessu máli í gegn af öllum málum sem er þannig að það er verið að afnema félagslega íbúðarkerfið? Fyrir utan það hvað málið er slæmt gagnvart láglaunafólki í landinu þá er málatilbúnaðurinn allur hneyksli og tök stjórnarforustunnar hér inni eru ótrúlega slöpp og lydduleg að öllu leyti þannig að ég hefði talið að langeðlilegast væri að fresta núna þessari atkvæðagreiðslu í einn eða tvo klukkutíma til þess að stjórnarliðið geti a.m.k. reynt að telja hér inn fleiri í atkvæðagreiðsluna þannig að málið liggi ekki þannig að stjórnarandstaðan sé að hjálpa málinu í gegn.