Bryndís Hlöðversdóttir:
Herra forseti. Í þessari grein er ráðherravaldið fest í sessi í anda þess sem hæstv. ríkisstjórn hefur gert í öðrum málum. Í þessari grein er kveðið á um að félmrh. skipi tíu menn í stjórn Íbúðalánasjóðs án nokkurra tilnefninga og án þess að hann þurfi að hafa samráð um það við nokkurn einasta mann nema sjálfan sig. Félmrh. skal auk þess, í samráði við sjálfan sig væntanlega, skipa formann og varaformann úr þeim hópi. Ég get ekki fallist á slíkt einræði ráðherra eins og kveðið er á um í þessari grein. Hún er andvíg lýðræðislegum stjórnarháttum. Ég greiði því atkvæði gegn greininni.