Húsnæðismál

Mánudaginn 18. maí 1998, kl. 12:29:22 (6729)

1998-05-18 12:29:22# 122. lþ. 130.1 fundur 507. mál: #A húsnæðismál# frv. 44/1998, JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur, 122. lþ.

[12:29]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Þetta ákvæði um að félagasamtök eigi kost á húsbréfum mun hvorki nýtast búsetahreyfingunni, námsmönnum, fötluðum né öðrum félagasamtökum meðan ekki er opnað á 25% viðbótarlán til þeirra einnig. Svona sýndarmennskuákvæði er ekki hægt að styðja.