Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Ég held að það sé ástæða til að vekja sérstaka athygli á því að þótt viðbótarlán séu undanþegin stimpilgjaldi, þá koma þau gjöld af fullum þunga á almenna lánið. Það þýðir auknar byrðar og auknar álögur á þá sem hafa lægstu tekjurnar.