Húsnæðismál

Mánudaginn 18. maí 1998, kl. 13:26:16 (6756)

1998-05-18 13:26:16# 122. lþ. 130.1 fundur 507. mál: #A húsnæðismál# frv. 44/1998, JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur, 122. lþ.

[13:26]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Það er ástæða til að vekja athygli á þessu ákvæði. Með því er næstu tvö árin verið að takmarka frelsi fólks til þess að velja sér sjálft íbúð á markaði. Það átti þó að vera ein helsta gulrót ráðherrans.