Húsnæðismál

Þriðjudaginn 19. maí 1998, kl. 16:30:10 (6802)

1998-05-19 16:30:10# 122. lþ. 131.1 fundur 507. mál: #A húsnæðismál# frv. 44/1998, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 131. fundur, 122. lþ.

[16:30]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég treysti því þegar þessari hríð linnir að þá takist okkur að ná góðu samstarfi við öll þau merkilegu og ágætu samtök sem stóðu að þessari auglýsingu og þau megi sæmilega við una. Það er alls ekki hugmynd okkar að fara að traðka á rétti námsmanna, öryrkja eða annarra sem áttu fulltrúa þarna.