Lánasjóður landbúnaðarins

Þriðjudaginn 19. maí 1998, kl. 16:50:06 (6813)

1998-05-19 16:50:06# 122. lþ. 131.8 fundur 625. mál: #A Lánasjóður landbúnaðarins# (lánstími) frv. 52/1998, RG
[prenta uppsett í dálka] 131. fundur, 122. lþ.

[16:50]

Rannveig Guðmundsdóttir:

Herra forseti. Þetta frv. er ekki stórt í sniðum. Það er í raun ein lína og u.þ.b. 14 orð. Þess vegna þarf svo sem ekki vegna stærðar þess að hafa um það mörg orð. En þannig er málum háttað að fulltrúar jafnaðarmanna í landbn. hafa skrifað undir álit þetta með fyrirvara og þeir eru báðir með fjarvist í dag. Hins vegar hef ég fallist á það að við ljúkum 2. umr. um þetta mál og vek á því athygli og áskil þeim rétt til að koma ábendingum sínum um þetta litla frv. á framfæri við 3. umr. sem mér skilst að verði ekki tekin í dag.