Sveitarstjórnarlög

Mánudaginn 25. maí 1998, kl. 14:12:37 (6833)

1998-05-25 14:12:37# 122. lþ. 132.1 fundur 288. mál: #A sveitarstjórnarlög# (heildarlög) frv. 45/1998, Frsm. meiri hluta MS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 132. fundur, 122. lþ.

[14:12]

Frsm. meiri hluta félmn. (Magnús Stefánsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta eru einmitt sjónarmið sem eru þekkt úr umræðunni undanfarið. En ég vil ítreka það sem ég sagði í framsögu minni að gert er ráð fyrir endurskoðun orkulaga og laga um vatnsveitur og það er auðvitað lykilatriði í þessu máli því að við þá endurskoðun verður nánar kveðið á um þessi atriði og þar munu skýrari línur koma fram um þessi mál.