Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Enn einu sinni stöndum við frammi fyrir því á hv. Alþingi á þessu þingi að gróflega og alvarlega hefur verið misfarið með opinbert fé hjá Landsbankanum. Himinháar fjárhæðir eða a.m.k. 700 millj. hafa glatast af fé skattborgaranna og ég spyr: Hver ber ábyrgð? Hver er ábyrgð bankaráðsins í þessu efni? Hver er ábyrgð stjórnenda Lindar? Hver er ábyrgð bankamálaráðherrans?
Ég kalla eftir því, herra forseti, og fer fram á það við ráðherra að fyrir Alþingi verði lögð greinargerð frá janúar 1996 sem lögð var fyrir bankaráð þar sem reynt var að varpa ljósi á atburðarásina sem leiddi til þessa gífurlega taps sem við stöndum frammi fyrir. Ég fer fram á það við hæstv. ráðherra að greinargerð Ríkisendurskoðunar, sem lá fyrir um málið í lok árs 1996, verði lögð fyrir Alþingi og ég spyr ráðherra: Er hann reiðubúinn að beita sér fyrir því?
Einnig þarf líka fá fram, og ég spyr ráðherra um það, tap á verulegum fjármunum á rekstrarleigustarfsemi með vinnuvélar sem virðist hefjast eftir að bankinn er orðinn einn eigandi félagsins. Hana þarf líka að skoða sérstaklega og ég spyr um það. (Viðskrh.: Það kemur fram í svarinu.) Það kemur ekki fram. Það vantar sundurliðun á því, herra forseti, og ég fer fram á að ítarlegar verði gerð grein fyrir því á Alþingi heldur en gert hefur verið.
Mér sýnist, herra forseti, að þetta mál sé þannig vaxið að fyrir löngu hefði átt að fara fram opinber rannsókn á því. Hér er á ferðinni svo mikill skandall að Alþingi verður að taka þetta mál föstum tökum og það er skiljanlegt að í svari við fyrirspurn minni á dögunum hafi ráðherra reynt að koma sér hjá því að tilgreina tap bankans í hverju einstöku tilfelli hjá tíu fyrirtækjum og einstaklingum sem mest var afskrifað hjá í bankanum. Ráðherrann hefur ekki viljað svara því hingað til. Ég hef ítrekað farið fram á það. Ég krefst þess að það verði lagt fram sundurliðað áður en þing fer heim. En hér stöndum við frammi fyrir einum stærsta skandal, miklu bankahneyksli hjá einu fyrirtæki, þar sem bankinn og bankaráð hafa tekið af fullkomnu ábyrgðarleysi á málefnum Lindar sem hefur leitt til þess að tapast hafa a.m.k. 700 millj. sem skattgreiðendur borga brúsann af.