Valgerður Sverrisdóttir:
Hæstv. forseti. Ég á kannski ekki beint sökótt við forseta, en þó. Ég tel að forseti verði að grípa inn í þegar hv. þingmenn koma hér hver á fætur öðrum og brjóta þingskapalög.
Við komum okkur saman um þegar við breyttum þingskapalögum að í upphafi fundar mættu fara 20 mínútur í umræðu um störf þingsins. Nú er orðinn hálftími síðan sú umræða hófst og þó svo tímanum sé lokið og forseti hafi tilkynnt það, þá halda þingmenn áfram að koma upp og þykjast ætla að tala um fundarstjórn forseta en halda áfram umræðu um það umræðuefni sem áðan var til umræðu. Þetta gengur ekki. Þetta er búið að ganga svona til í allt vor nánast á hverjum einasta degi og ég mótmæli þessu. Við erum algjörlega að eyðileggja ásýnd Alþingis út á við með þessu háttalagi og ég skora á hæstv. forseta að stöðva þessa umræðu núna.