Hjálmar Jónsson (andsvar):
Herra forseti. Það er misskilningur að landbúnaður sé rekinn með meira styrktarkerfi hér en í öðrum löndum. Það er alger misskilningur. Landbúnaður í Evrópu sérstaklega er rekinn á verulegum styrkjum en það er óvíða, ef nokkurs staðar, sem ríkisframlög hafa minnkað jafnmikið á undanförnum árum og á Íslandi. Þetta viðurkenndi meira að segja og skýrði hv. þm. Ágúst Einarsson við 1. umr. um þetta frv.