Framleiðsla og sala á búvörum

Þriðjudaginn 26. maí 1998, kl. 16:02:03 (6943)

1998-05-26 16:02:03# 122. lþ. 133.4 fundur 559. mál: #A framleiðsla og sala á búvörum# (mjólkurframleiðsla) frv. 69/1998, SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 133. fundur, 122. lþ.

[16:02]

Svavar Gestsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. 2. þm. Suðurl. fyrir að hafa svarað spurningu minni. Ég bar upp þá spurningu hvort hv. þm. væri sá framsóknarmaður í landbn. sem hefði staðið að því að beita sér fyrir breytingum á kvótaþingsákvæðinu við hliðina á Sjálfstfl. Hv. þm. sór það af sér og ég fagna því.