KB fyrir HÁs

Miðvikudaginn 27. maí 1998, kl. 10:31:24 (6956)

1998-05-27 10:31:24# 122. lþ. 134.92 fundur 414#B KB fyrir HÁs#, Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 134. fundur, 122. lþ.

[10:31]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl., er á förum til útlanda í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 2. varaþm. Framsfl. í Austurl., Kristjana Bergsdóttir kennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans og forföllum 1. varaþm. flokksins í kjördæminu.

Þetta er yður hér með tilkynnt.

Valgerður Sverrisdóttir,

formaður þingflokks Framsfl.``

Enn fremur hefur borist svohljóðandi bréf:

,,Vegna anna á næstunni sé ég mér ekki fært að sækja þingfundi og óska því eftir að 2. varaþm. Framsfl. í Austurl., Kristjana Bergsdóttir kennari, taki sæti Halldórs Ásgrímssonar, 1. þm. kjördæmisins, í minn stað.

Seyðisfirði, 27. maí 1998.

Jónas Hallgrímsson.``

Kristjana Bergsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa.