Forseti (Guðni Ágústsson):
Forseti hefur rætt við þann mann sem sér situr til aðstoðar og við höfum hvorugur tekið eftir því að hv. þm. bæði um orðið. Ég tók hins vegar eftir því að þegar hæstv. ráðherra var að tala þá bað hv. þm. um orðið. Hins vegar hvort það er venja eða ekki þekki ég það ekki nákvæmlega og mun fara yfir það í forsætisnefnd. En því miður, tímanum sem var til þessarar umræðu er lokið.