Atvinnuleysistryggingar

Miðvikudaginn 27. maí 1998, kl. 11:46:49 (6979)

1998-05-27 11:46:49# 122. lþ. 134.7 fundur 654. mál: #A atvinnuleysistryggingar# (geymsla áunnins réttar o.fl.) frv. 47/1998, Frsm. KÁ
[prenta uppsett í dálka] 134. fundur, 122. lþ.

[11:46]

Frsm. félmn. (Kristín Ástgeirsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. félmn. um frv. til laga um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 12/1997.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Elínu Blöndal frá félagsmálaráðuneyti, Ingvar Sverrisson og Gunnar E. Sigurðsson frá Vinnumálastofnun og Margréti Tómasdóttur frá Atvinnuleysistryggingasjóði.

Frumvarpið er samið með hliðsjón af tillögum stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs til félagsmálaráðherra. Breytingar samkvæmt frumvarpinu eru almennt til ívilnunar fyrir atvinnulausa.

Helstu breytingar á gildandi lögum sem felast í frumvarpinu eru þær að í fyrsta lagi er kveðið á um rétt manna til að geyma áunninn bótarétt í allt að 24 mánuði. Ákvæðið felur í sér svigrúm fyrir þá sem misst hafa vinnu sína til að leita að nýrri vinnu án milligöngu vinnumiðlunar og án þess að sjálfstæð leit þeirra leiði til skerðingar bótaréttar. Þá er lagt til að sá sem hverfur af vinnumarkaði vegna töku fæðingarorlofs öðlist einnig rétt til að geyma áunninn bótarétt í allt að 24 mánuði og mælt er fyrir um rýmkun á rétti fanga gagnvart atvinnuleysisbótakerfinu. Kveðið er á um rétt til hlutabóta ef menn stunda hlutastörf en í gildandi lögum er ekki kveðið á um þennan rétt og hefur það leitt af sér réttaróvissu. Þá er lagt til að jafnaður verði réttur fiskvinnslufólks sem ekki á rétt að gera kauptryggingarsamning skv. 16. kafla kjarasamnings VMSÍ og VSÍ/VMS og þeirra sem eiga þann rétt og að lokum er skýrt kveðið á um hvaða greiðslur úr Tryggingastofnun eða lífeyrissjóðum komi til frádráttar atvinnuleysisbótum.

Í máli gesta kom fram að verði frumvarpið samþykkt á yfirstandandi þingi þurfi að breyta gildistökuákvæði þess þar sem aðlaga þarf tölvukerfi Vinnumálastofnunar að breytingunum.

Nefndin tekur undir markmið frumvarpsins og leggur til að það verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

7. gr. orðist svo:

Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1998.

Undir nál. rita allir nefndarmenn en Rannveig Guðmundsdóttir og Ögmundur Jónasson skrifa undir með fyrirvara.