Sigríður Jóhannesdóttir:
Hæstv. forseti. Ég tók þátt í afgreiðslu þessa máls í landbn. og fannst að með því að framfylgja þeim ákvæðum sem hér eru skýr í 13. gr. og koma fram með reglurnar sem ættu að fylgja, þá gæti það orðið til mikilla bóta þegar rætt er um að stækka vaktsvæðin eins og hér er gert ráð fyrir. Það tókst ekki að fá það fram. Lokayfirlýsing ráðuneytisins var sú að það ætti að sjá til í eitt til tvö ár og fá reglur um aksturskostnað. Þess vegna get ég ekki samþykkt þessa grein eins og hún liggur hér fyrir.