Leigubifreiðar

Fimmtudaginn 28. maí 1998, kl. 13:28:59 (7102)

1998-05-28 13:28:59# 122. lþ. 136.11 fundur 519. mál: #A leigubifreiðar# (vöru- og sendibílar) frv. 71/1998, Frsm. EKG
[prenta uppsett í dálka] 136. fundur, 122. lþ.

[13:28]

Frsm. samgn. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti á þskj. 1137 ásamt breytingartillögum á þskj. 1138 um frv. til laga um breyting á lögum um leigubifreiðar, nr. 61/1995. Tilgangur þessa frv. var fyrst og fremst sá að setja reglur um sendi- og vörubifreiðastjóra sem stunda leiguakstur með vörur og enn fremur að setja lagaramma varðandi leiguakstur á fólksbifreiðum.

Ég vil vekja athygli á því að í umfjöllun nefndarinnar var gerð nokkur breyting á frv. Við nánari skoðun nefndarinnar á málinu taldi hún rétt að fella brott ákvæði 2. og 3. gr. frv. um leiguakstur vörubifreiða og sendibifreiða þar sem mörg atriði í því sambandi séu enn óljós og þurfi frekari skoðunar við. Nefndin vill hins vegar vekja athygli á því að með þessu frv. er ekki stefnt að neinni heildarendurskoðun laga um leigubifreiðar heldur tekur þessi endurskoðun einungis til mjög afmarkaðra þátta. Nefndin er hins vegar þeirrar skoðunar að vegna breyttra aðstæðna í umferðinni og krafna um aukið öryggi sé nauðsynlegt að fram fari frekari endurskoðun á lögunum, svo sem varðandi útgáfu starfsleyfa og verkefni umsjónarnefndar.

[13:30]

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar er til í sérstöku þingskjali. Þær eru eftirfarandi:

Lagt er til að orðin ,,óflekkað mannorð`` í b-lið 1. gr. frumvarpsins falli brott og að greinin verði umorðuð þannig að hún falli að upptalningu 3. gr. laganna. Ekki felst í þessu efnisbreyting. Þetta er gert þar sem ríkari kröfur eru gerðar til mannorðs þeirra sem aka fólksbifreiðum í leiguakstri en að það sé óflekkað í skilningi kosningalaga. Skilyrði til þess að fá heimild til leiguaksturs fólksbifreiða eru á hinn bóginn rakin í greininni. Auk þess vill nefndin benda á að í 2. tölul. 2. efnismgr. 2. gr. er vísað til hugtaksins ,,óflekkað mannorð`` í þeirri merkingu sem lögð er í það samkvæmt kosningalögum. Meiri kröfur eru gerðar til aksturs fólksbifreiða í leiguakstri en aksturs vöru- og sendibifreiða. Breytingunni er ætlað að koma í veg fyrir misskilning og hugtakabrengl. Varhugavert er að hafa tvær merkingar á sama hugtakinu í einum lögum.

Þá er lagt til að í stað orðsins ,,skírlífisbrot`` í b-lið 1. gr. komi ,,kynferðisbrot``. Þetta er í samræmi við breytta hugtakanotkun í almennum hegningarlögum, sbr. lög nr. 40/1992.

Og síðan eins og áður er rakið er lagt til að 2. og 3. gr. falli brott.

Undir þetta nál. rita auk formanns og frsm. hv. þm. Magnús Stefánsson, Guðmundur Árni Stefánsson, Egill Jónsson, Árni Johnsen, Ragnar Arnalds, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Kristján Pálsson og Stefán Guðmundsson.