Réttarstaða barna til umgengni við báða foreldra sína

Fimmtudaginn 28. maí 1998, kl. 18:54:23 (7158)

1998-05-28 18:54:23# 122. lþ. 136.24 fundur 173. mál: #A réttarstaða barna til umgengni við báða foreldra sína# þál., Frsm. HjálmJ
[prenta uppsett í dálka] 136. fundur, 122. lþ.

[18:54]

Frsm. allshn. (Hjálmar Jónsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um till. til þál. um bætta réttarstöðu barna til umgengni við báða foreldra sína.

Allshn. hefur fjallað um málið og bárust umsagnir um það frá Félagi ábyrgra feðra, umboðsmanni barna, Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar, Rauðakrosshúsinu, Barnaverndarstofu, barnaverndarráði og Barnaheillum.

Í tillögunni er lagt til að dómsmálaráðherra verði falið að skipa nefnd til að gera úttekt á íslenskum lögum og réttarframkvæmd sem varða réttarstöðu barna til umgengni við báða foreldra sína. Nefndinni bárust þær upplýsingar að dómsmálaráðherra hefði til athugunar breytingar á þessum málaflokki, m.a. hvort unnt væri að setja í lög frekari úrræði en nú eru í gildi til að koma á umgengni forsjárlauss foreldris við barn sitt. Leggur nefndin áherslu á að um mikilvægt málefni er að ræða sem brýnt er að tekið verði á sem fyrst.

Í ljósi þessa leggur nefndin til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Undir það rita allir nefndarmenn í hv. allshn.