Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson):
Herra forseti. Ástæða þess að ég kveð mér hljóðs um störf þingsins er sú að ég tel það nokkuð alvarlegt þegar einstakir þingmenn segja ósatt um störf þingsins og gefa ranga mynd af þeim störfum sem hér fara fram.
Í morgunþætti Bylgjunnar í morgun sagði hv. þm. Ásta R. Jóhannesdóttir að óundirbúnar fyrirspurnir í þinginu væru þess eðlis að ráðherrar hefðu tök á að undirbúa sig fyrir þær, ef þeir vildu það við hafa. Þingmaðurinn sagði þann háttinn hafðan á að þingmenn legðu fram beiðni um fyrirspurn til forseta þingsins að morgni dags og tækju þar fram um hvað þeir ætluðu að spyrja. Hún kvað ráðherra þannig hafa tök á að afla sér gagna og undirbúa sig fyrir svör en þeir hefðu ekki upplýsingar á hraðbergi þegar að þessum fyrirspurnum kæmi.
Þarna er þingmaðurinn í fyrsta lagi að segja ósatt. Í öðru lagi gefur hún algerlega ranga mynd af því hvernig staðið er að óundirbúnum fyrirspurnum. Ég tel það alvarlegt og ekki síst frá þingmanni sem hefur sett sig í dómarasæti um hvernig störf þingsins eiga að vera, hvenær menn fara með sannleikann og hvenær ekki. Þess vegna óska ég eftir því, hæstv. forseti, að forseti úrskurði í því hvort þingmaðurinn segi satt í umræddu útvarpsviðtali um undirbúning óundirbúinna fyrirspurna á Alþingi.