Vegáætlun 1998-2002

Þriðjudaginn 02. júní 1998, kl. 15:00:53 (7226)

1998-06-02 15:00:53# 122. lþ. 140.3 fundur 378. mál: #A vegáætlun 1998-2002# þál. 19/122, EgJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 140. fundur, 122. lþ.

[15:00]

Egill Jónsson:

Virðulegi forseti. Við umræðu um þetta mál sem fór fram fyrir fáeinum dögum gerði ég grein fyrir afstöðu minni til vegáætlunar fyrir árin 1998--2002 svo og langtímaáætlunar í vegagerð þar sem ég gagnrýndi þessar áætlanir harðlega, báðar tvær. Þá gagnrýni undirstrika ég með því að sitja hjá við þá atkvæðagreiðslu sem nú fer fram og sama gildir um næsta mál á dagskrá.