Guðmundur Árni Stefánsson:
Virðulegi forseti. Mér þætti eðlilegra ef eingöngu yrðu greidd atkvæði um þennan lið en hann yrði ekki samþættur öðru því að þetta er sjálfstætt mál. Ég vildi sérstaklega geta þess að þessi liður er býsna hár, sérstaklega í ljósi annarra brýnna vegabóta sem eru látnar bíða. Ástæðan er auðvitað fyrst og síðast ein. Þar er um að ræða mjög dýra fjárfestingu á Eyjafirði, það er Hríseyjarferjan, gæluverkefni hæstv. samgrh. Mér finnast þær upphæðir sem þar eru á ferðinni algerlega úr fasa við önnur áformuð verkefni í þessari áætlun. Ég get ekki staðið að þeirri fjárfestingu og mun því ekki greiða atkvæði.