Hjálmar Árnason:
Herra forseti. Enn koma heilbrigðismál til umræðu á hv. Alþingi sem umræða utan dagskrár. Enn fara fram umræður um heilbrigðismál undir neikvæðum formerkjum.
Það er, herra forseti, nokkuð athyglisvert að málshefjandi, hv. þm. Sighvatur Björgvinsson, gegndi starfi hæstv. heilbrrh. á síðasta kjörtímabili og gat sér nokkurt orð í því starfi. Sumir töluðu um að hart væri fram gengið af þáv. hæstv. heilbrrh. en miklar umræður urðu um þá stefnumörkun sem þá var mótuð með innleiðingu þjónustugjalda.
Á þessu kjörtímabili hafa þjónustugjöldin, þessi sömu, verið nokkuð til umræðu, m.a. af hv. þm., fyrrv. hæstv. heilbrrh., Sighvati Björgvinssyni, þar sem ráðist er mjög harkalega á þjónustugjöld. Þar með er hv. þm. að ráðast að eigin stefnu, þeirri stefnu sem hann sjálfur innleiddi í ráðherratíð sinni. En sami hv. þm. hefur minna rætt um að þjónustugjöld að raungildi hafa lækkað sl. þrjú ár. Það hefur verið stritað við að vinda ofan af þeim háu þjónustugjöldum sem komið var á á síðasta kjörtímabili.
Svipuð er umræðan um heilbrigðismál þegar kemur að fjárveitingum og mikið og gjarnan er talað um niðurskurð. Niðurskurður er það orð sem gjarnan heyrist hjá hv. stjórnarandstöðu. (MF: Og fleirum.) Svo hátt að við liggur að almenningur sé farinn að trúa því. Þetta er ótrúverðug umræða, þetta er ósanngjörn umræða einfaldlega vegna þess að staðreyndir segja annað. (Gripið fram í: Af hverju er starfsfólkið ...) Hvað sem um er talað þá hafa fjárveitingar og framlög til heilbrigðismála á þessu kjörtímabili aukist um 4,5 milljarða eða 8,5%, og það eru rauntölur, umfram verðbólgu. Þess vegna er ótrúverðugt að ræða stöðugt um niðurskurð þegar tölulegar staðreyndir segja annað.
Hitt er annað mál að vandi heilbrigðiskerfisins og fjárþörf er meiri og mun sú fjárþörf ávallt verða til staðar og fara vaxandi, bæði vegna þess að sérfræðikunnáttu fleygir fram, vísindum fleygir fram með kostnaði, lyfjum fleygir fram og aldurssamsetning þjóðarinnar er að breytast. Það eru fleiri sem þurfa á aðstoð að halda og það munu vera færri sem undir því þurfa að standa. Þess vegna munum við um síðir standa frammi fyrir þeirri erfiðu ákvörðun, hversu langt við viljum og getum gengið í þessum viðkvæma málaflokki.
Herra forseti. Hér er gjarnan hamast mjög á hinu neikvæða og mætti ætla að ekkert jákvætt hafi gerst í heilbrrn. en það er öðru nær. Hér kom fram skýr stefnumörkun hjá hæstv. heilbrrh. Komið hefur fram að almannatryggingar hafa aukist um hátt í 20% á þremur árum, samningar verið gerðir um heilsugæslu, heildarútgjöld aukist og þannig má áfram telja, en ég vil, herra forseti, sérstaklega fagna þeirri áherslu sem lögð hefur verið á forvarnir með auknum fjárframlögum sem m.a. hafa dugað til þess að heil bæjarfélög, ég nefni Reykjanesbæ, hafa vegna framlaga úr Forvarnasjóði getað virkjað grasrótina til eins öflugasta forvarnastarfs sem um getur. Það er m.a. vegna aukinnar áherslu á forvarnir.