Efling atvinnu- og þjónustusvæða á landsbyggðinni

Þriðjudaginn 02. júní 1998, kl. 18:21:14 (7286)

1998-06-02 18:21:14# 122. lþ. 141.13 fundur 16. mál: #A efling atvinnu- og þjónustusvæða á landsbyggðinni# þál., Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 141. fundur, 122. lþ.

[18:21]

Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá allshn. um tillögu til þál. um eflingu atvinnu- og þjónustusvæða á landsbyggðinni.

Í tillögunni er mælt fyrir um skipun nefndar til að móta tillögur um það hvernig efla megi atvinnu- og þjónustusvæði á landsbyggðinni í því skyni að jafna stöðu manna í dreifbýli og þéttbýli. Nú hefur verið lögð fram á Alþingi af forsætisráðherra tillaga til þingsályktunar um stefnu í byggðamálum fyrir árin 1998--2001, 695. mál. Í því máli koma í meginatriðum fram markmið tillögu þessarar.

Í ljósi framangreinds mælir nefndin með því að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Allir nefndarmenn allshn. undirrita nál.