Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):
Herra forseti. Ég get upplýst hv. þm. um það að ég var ekki á andafundi þegar ég las þessi skjöl sem um er að ræða því að þau liggja hér fyrir og hljóta að liggja fyrir í möppu þingmannsins eins og í bréfasafni mínu. Og ég hef aldrei sagt að þetta væri auðvelt. Ég hef aldrei sagt að það væri auðvelt að veita þessa menntun í 15 einingum.
Hins vegar hef ég sagt að það hafi komið fram að það er hægt að gera það. Og þegar þeir aðilar sem segja að hægt sé að gera það komu og kynntu það fyrir mér þá sögðu þeir: En við verðum að gera ríkar og markvissar kröfur um það nám sem viðkomandi hefur fengið í sínu fagi til þess að unnt sé að veita þessa menntun með þessum hætti. Og um það snýst málið en ekki um hitt hvort það sé unnt að gera þetta eða ekki. Það liggur fyrir að það er hægt.
Hitt er álitaefnið, sem ég tek undir að þarf að hafa auga með, að menn fari ekki í kringum þær kröfur sem á að gera til fagþekkingarinnar. Ég tel að eins og þetta er orðað í frv. og eins og meiri hlutinn hefur gengið frá sínu máli þá sé það með skynsamlegum hætti til þess að það sé ekki verið að loka einhverjum dyrum fyrir fram gagnvart einstaklingum heldur geti menn skoðað þetta og látið þetta mál þróast eins og önnur og á grundvelli reglna sem settar eru með þessar faglegu meginkröfur að leiðarljósi.