Lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara

Þriðjudaginn 02. júní 1998, kl. 21:47:31 (7315)

1998-06-02 21:47:31# 122. lþ. 141.20 fundur 445. mál: #A lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara# (heildarlög) frv. 86/1998, GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 141. fundur, 122. lþ.

[21:47]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég get tekið undir það með hv. formanni menntmn. að þessi vinnubrögð voru viðhöfð í nefndinni enda sagði ég ekkert annað en að málið hefði ekki verið sent út í vetur. Ég nefndi það vegna þess að það fólk sem sendi inn umsagnir í fyrra vissi af því en það virtist ekki átta sig alveg á því að núna væri allt í einu komið að því að afgreiða þetta frv. Það var fyrst og fremst það sem ég átti við með því að málið hefði ekki verið sent út í vetur. Það hefði verið ástæða til þess að gera það því þá hefðu kannski fleiri sett sig í stellingar til að ræða það á opinberum vettvangi.