Áfengislög

Fimmtudaginn 04. júní 1998, kl. 14:42:40 (7470)

1998-06-04 14:42:40# 122. lþ. 144.6 fundur 478. mál: #A áfengislög# (heildarlög) frv. 75/1998, VS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 144. fundur, 122. lþ.

[14:42]

Valgerður Sverrisdóttir:

Hæstv. forseti. Með þessari tillögu er ekki tekin nein afstaða til þess hvort lækka skuli áfengiskaupaaldur eða ekki. En eftir þær umræður sem fram höfðu farið í nefndinni um þetta mál, og það hefur ekki farið fram hjá neinum að það fer fram umræða í þjóðfélaginu um að lækka áfengiskaupaaldur, þá taldi nefndin eðlilegt að þetta mál yrði skoðað af hlutlausum aðilum. Þannig hefðu hv. þm. einhver gögn þegar þetta mál kemur næst til umfjöllunar og því er þessi tillaga lögð fram af nefndinni.