Áfengis- og vímuvarnaráð

Fimmtudaginn 04. júní 1998, kl. 22:55:56 (7529)

1998-06-04 22:55:56# 122. lþ. 145.20 fundur 479. mál: #A áfengis- og vímuvarnaráð# frv. 76/1998, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 145. fundur, 122. lþ.

[22:55]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Fyrir fáeinum dögum var utandagskrárumræða um þetta mál. Ég tel að þá hafi hv. þm. Hjörleifur Guttormsson fengið mjög skýr svör við þeim fyrirspurnum sem hann hefur lagt fram. Ég ætla að vona að hann dæmi ekki þá umræðu dauða og ómerka því að ég fylgdist með þeirri umræðu og ég heyrði ekki betur en að hv. þm. fengi skýr svör.