Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég geri ráð fyrir því að fleiri en ég séu hugsi yfir stöðu Alþingis á þessu augnabliki. Verið er að taka ákvörðun um að hindra að það megi fara yfir stöðu og vinnubrögð t.d. bankaeftirlitsins í þessu máli til að styrkja bankaeftirlitið. Verið er að tala um að fara yfir stöðu stofnana eins og Ríkisendurskoðunar til að styrkja Ríkisendurskoðun. Verið er að tala um það í þessu sambandi að fara yfir vinnubrögð og stöðu ráðuneytanna, bæði forsrn. og viðskrn., til að styrkja þessar stofnanir sem lýðræðislegar aðalstofnanir. Það er það sem verið er að gera tillögu um af stjórnarandstöðunni, herra forseti.
Í þessu máli hafa verið bornar fram mjög alvarlegar ásakanir á einstaklinga eins og Steingrím Hermannsson, bankastjóra Seðlabankans, í blaðaskrifum að undanförnu. Enda þótt menn láti sér þessi blaðaskrif í léttu rúmi liggja þá held ég að það hefði verið skynsamlegt fyrir þingið, fyrir Seðlabankann og alla aðila, að þessi mál hefðu verið skoðuð í þaula. Það er verið að hindra það. Ég harma, herra forseti, að meiri hlutinn á Alþingi skuli vera svo lítilla sanda og lítilla sæva að hann þoli ekki og þori ekki að fallast á jafnsanngjarna tillögu og þá sem liggur fyrir frá stjórnarandstöðunni. Ég segi þess vegna nei við þessari gerræðislegu og ómerkilegu frávísun, ólýðræðislegu frávísunartillögu stjórnarflokkanna.