Ávarp aldursforseta

Miðvikudaginn 01. október 1997, kl. 14:13:41 (2)

1997-10-01 14:13:41# 122. lþ. 0.93 fundur 27#B ávarp aldursforseta#, Aldursforseti RA
[prenta uppsett í dálka] 0. fundur

[14:13]

Forseti (Ragnar Arnalds):

Ég þakka forseta Íslands fyrir vinsamleg orð í garð Alþingis og okkar alþingismanna. Jafnframt sendi ég frú Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur hlýjar kveðjur á þessum degi fyrir hönd alþingismanna, en hún getur ekki verið viðstödd þessa athöfn.

Ég býð hv. alþingismenn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá von að störf þessa þings verði landi og þjóð til heilla.

Fyrir hönd okkar alþingismanna heilsa ég starfsfólki Alþingis og vænti þess að við megum eiga góða samvinnu við það eins og endranær.